Wednesday, 15 February 2012
Monday, 13 February 2012
apatowcalypse now.
ég montaði mig um daginn yfir afmælisgjöfinni sem ég teiknaði handa judd apatow. montnari er ég þó af goodies pakkanum sem ég fékk sendan frá apatow productions.
bridesmaids á blueray/dvd, anchorman á blueray, get him to the greek á dvd (með extra nekt og dópi) og freaks and geeks í svona líka fallegri yearbook útgáfu. ekki bara allir þættirnir með fullt af aukaefni, heldur líka fyrirtaks coffee table bók með fullt af ljósmyndum og viðtölum.
auk þess fékk ég yo teach! bol. yo teach! er tween-sitcom sem er ekki til í alvöru heldur í kvikmyndinni funny people eftir apatow. karakter jasons schwartzman lék teach. þessi bolur er þá næstum því metafísískur. ef ég skil orðið metafísískur rétt. hann er samt of stór (enda frá bandaríkjunum þar sem fólk er of stórt). ég nota hann líklega bara sem náttkjól.
þessir gripir eiga eftir að þjóna sínum tilgangi vel. þ.e.a.s. þeir munu tímabundið fylla upp í tómarúmið innra með mér.
húrra fyrir hlutum!

Tuesday, 7 February 2012
osom.
osombie er nafnið á nýrri zombíumynd. verður maður ekki að sjá þetta? nú höfum við séð nasistazombíur og stripparazombíur, en talíbanazombíur áttum við eftir. hér segir frá því þegar osama bin laden rís upp frá dauðum. líkt og annar frægur skeggjaður maður frá mið-austri gerði fyrir löngu. svo koma einhverjir bandarískir hermenn og rústa zombíunum og fara í sleik. need I say more? nei, og auk þess er ekki hægt að segja meira því að that is basically it. samkvæmt treilernum allavega.
er myndin djúp ádeila á utanríkisstefnu BNA? nei líklega ekki. er þetta óforskammarlegt amerisplotation? já mér sýnist það. skiptir það máli? nah.
helsti ókostur myndarinnar virðist í fljótu bragði vera tölvugerður splatter. það er greinilega ódýrara að sprengja hausa í tölvum en að fylla gúmmímódel af tómatsósu. en það er líka ljótara og dregur verulega úr áhrifum. ú á pixelsplatter.
en maður kíkir væntanlega á þessa mynd fyrr eða síðar. hún lítur viðunandi út.
sammála? eða ósammála bin laden?
PS
talandi um springandi hausa...

Monday, 6 February 2012
I have an army. we have a hulk.
avenger superbowl spottið komið.semsagt avengers versus loki og geimverur. Það verður vonandi hinir stórskemmtilegu skrullar. grænir með álfaeyru og krumpaðar hökur. love them. vona að þeir verði ekki of pimpaðir í myndinni. hollywood reynir svo oft að pimpa myndasögupersónur. það er óþarfi. ofurhetjur eiga ekki að vera kúl. þær eru hallærislegar. og hallærislegt er nýja kúlið eins og thor myndin sannaði.
en þetta er dásamlegt myndskeið. uppbyggingin að nerdgazmi ársins heldur áfram. ég get ekki beðið. joss whedon skrifar og stýrir sem er traustvekjandi því hann hefur ekki klúðrað neinu hingað til. það eina sem böggar mig er puslupartíið. bara ein gella? scarlett er mjög flott sem black widow, en ég sakna ms.marvel, wasp og minnar uppáhalds; spider-woman. þetta þarf að laga. það er enn of mikil pungfýla af nördasamfélaginu og við verðum að hleypa fleiri stelpum í búningsklefann. hafa þetta bara unisex eins og í ally mcbeal og starship troopers (chickreferens og nördareferens í sömu setningu!)
en ég get svosum ekki kvartað af neinu ráði, enda man ég eftir myrkum tíma þegar eina ofurhetjumynd ársins var spawn. í dag fáum við hulk, iron man, thor og cap í einni mynd eftir sama mann og gerði buffy the vampire slayer. og ef það dugar ekki förum við bara á háalvarlegt batman drama í næsta sal. it is good to be geek.

Saturday, 4 February 2012
Subscribe to:
Posts (Atom)